Tindastóll á nýju rútunni til Grindavíkur í dag

Fyrsta umferð Domino's deildarinnar eftir jólafrí fer fram í kvöld og munu strákarnir í liði Tindastóls bruna til Grindavíkur á splunkunýrri rútu sem FISK Seafood afhenti félaginu í gær. Að sögn Þrastar Jónssonar eru strákarnir í þrusugóðu formi eftir stífar æfingar í jólafríinu.

-Það er vonandi að rútan verði okkur til happs í framtíðinni, er allavega happafengur, sagði Þröstur og vildi láta þakkir fljóta með til FISK fyrir þeirra höfðinglegu gjöf.

Tindastóli hafði ekki gengið vel að klára leikina sína í fyrri hluta keppninnar þrátt fyrir glæsilegan árangur í Lengjubikarnum en liðið var komið í gang og vann tvo leiki rétt áður en jólafríið „skall skyndilega“ á og vonandi að „rönnið“ hafi enst fríið á enda. Liðið situr enn á botninum með 4 stig ásamt KFÍ en þar fyrir ofan eru Skallagrímur og ÍR með 6 stig, Njarðvík og Fjölnir með 8 stig, Keflavík 10 og KR 12 í 5. sæti, þá eru Snæfell og Stjarnan með 14 stig, Grindavík 16 í 2. sætinu og Þór Þorlákshöfn trónir á toppnum með 16 stig.

Leikurinn í kvöld verður sýndur beint á Tindastóll-TV en stuðningsmenn eru hvattir til að fjölmenna á Mælifell þar sem leiknum verður varpað á sýningartjald. Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15.

Fleiri fréttir