Tindastóll fær rútu að gjöf
Í gær fékk Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki afhenta fólksflutningabifreið að gjöf frá FISK-Seafood ehf. Bifreiðin er ný af gerðinni Mercedes-Benz , Sprinter 519 KA Extra löng og útbúin eins og best verður á kosið. Það var Jón Edvald Friðriksson framkvæmdastjóri sem afhenti Gunnari Gestssyni formanni UMFT bílinn við hátíðlega athöfn í Kjarnanum í gær.
Jón Eðvald sagði að hvatinn af þessari gjöf væri umræðan um stóraukinn ferðakostnað íþróttafélaga á landsbyggðinni vegna hækkandi olíuverðs og sífellt aukinnar skattlagningar ríkisins á hvern olíulítra og eða ekinn kílómetra.
-Þessi aukni kostnaður leggst þungt á alla þá sem stunda íþróttir, unga sem aldna og alveg sérstaklega fjölskyldur þar sem börnin eitt eða fleiri stunda hinar ýmsu íþróttir, sem aftur kalla á ferðalög fram og aftur um allt land, sagði Jón. Hér fyrir neðan er upptaka frá afhendingunni.
http://www.youtube.com/watch?v=ae-JneBbWxo