Tindastóll fékk skell í Reykjaneshöllinni
Karlalið Tindastóls lék við lið Keflavíkur í Lengjubikarnum í knattspyrnu í gær og óhætt að segja að það hafi fengið óblíðar móttökur í Reykjaneshöllinni. Þegar flautað var til leiks höfðu Suðurnesjamenn skorað sjö sinnum á móti engu marki Stólanna.
Að sögn Donna þjálfara var leikur Stólanna slakur. -Fyrri hálfleikurinn var mjög slakur af okkar hálfu, vorum of langt frá mönnum og gáfum þeim þ.a.l of mikinn tíma á boltanum. Vorum undir í barráttunni og of opnir varnarlega, sagði Donni en að hans mati var seinni hálfleikurinn skárri. Í 30 -35 mín vorum við vel með á nótunum og spiluðum þokkalega og náðum að loka vel á þá og sköpuðum okkur nokkur góð færi og fínar leikstöður.
Þeir skora í seinni hálfleik eftir 2 langskot og horn sem var slakt af okkar hálfu og hefði átt að vera auðvelt að koma í veg fyrir.
Donni segir að úrslitin hafi verið sanngjörn, Keflavík hafi verið betra liðið og unnið verðskuldað.
-Staðan á liðinu er ágæt að mörgu leyti. Líkamlegt atgervi leikmanna er fínt á þessum tíma og margir hlutir sem er verið að vinna með á réttri leið. Það er mikill metnaður í strákunum og allir að leggja mikla vinnu á sig og að gera sitt allra besta.
Við þurfum að venjast því að spila á hærra „leveli“ og við betri andstæðinga heldur en síðustu ár og það tekur tíma. Ég er sannfærður um að við munum verða tilbúnir þegar fyrsti leikur í íslandsmótinu hefst, segir Donni og bætir við að liðið sé feykilega ungt og reynslulítið lið sem þurfi að vinna með og slípa saman. -Það er þolinmæðisvinna fyrir alla þá sem koma að því. 1. deildin er miklu sterkari heldur en 2. deildin svo þetta er stórt stökk en við vonumst til þess að sem flestir verði tilbúnir að takast á við þetta verkefni í ár eða þá á næstu árum, því við viljum sjá Tindastól í þessum 2 efstu deildum í langan tíma í viðbót en ekki bara næsta tímabil.
Við höfum fulla trú á okkur og þessu verkefni og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að vera okkur og þeim sem standa okkur að baki til mikils sóma, segir Donni.