Tindastóll sigraði Breiðablik í Lengju-bikarnum

Í gærkvöldi spiluðu Tindastólsmenn við lærisveina Borce Illievski í Breiðabliki í Lengju-bikarnum og var leikið í Kópavogi. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim síðari skildu leiðir og Tindastólsmenn unnu öruggan sigur, 59-76.

Breiðablik, sem spilar í 1. deildinni og hefur á að skipa fyrrum Tindastólsmönnunum Sigmari Loga Björnssyni og Pálma Geir Jónssyni, hóf leikinn af krafti og eftir tæpar 4 mínútur voru þeir sjö stigum yfir, 11-4, og höfðu áfram yfirhöndina út fjórðunginn en aðeins munaði einu stigi að honum loknum, staðan 15-14. Arnar og Hreinsi settu niður þrista í byrjun annars leikhluta og komu Stólunum yfir en síðan var leikurinn bísna jafn fram að leikhléi en þá voru gestirnir með yfirhöndina, staðan 30-32.

Tindastóll náði frumkvæðinu strax í byrjun síðari hálfleiks og náðu 10 stiga forystu þegar Isaac Miles setti niður þrist þegar tvær og hálf var liðin af þriðja leikhluta. Þetta var þriðja 3ja stiga karfan sem Miles hefur gert fyrir Stólana í 5 leikjum og 25 skottilraunum. Munurinn var síðan í kringum 10 stig út fjórðunginn og í byrjun síðasta fjórðungsins bættu Stólarnir aftur í og þegar 2 mínútur voru liðnar var munurinn orðinn 19 stig og náðu heimamenn aldrei að minnka þann mun svo neinu næmi og lokatölur 59-76 fyrir Tindastól sem hefur þá unnið báða leiki sína í Lengju-bikarnum.

Stig Tindastóls: Valentine 17/9frk, Miles 11, Hreinsi 10, Svabbi 10, Friðrik 10, Helgi Rafn 7, Ingvi Rafn 4, Sigtryggur Arnar 3 og Pétur Rúnar og Helgi Freyr 2 hvor.

Fleiri fréttir