Tindastóll tekur á móti Þór Þorlákshöfn í kvöld
Nú fer að styttast í lok deildarkeppninnar Iceland-Express deildarinnar í körfubolta en 20. umferð lýkur í kvöld með þremur leikjum. Tindastóll tekur á móti Þór Þorlákshöfn, Keflavík býður Stjörnunni heim og Valur og KR eigast við í höfuðborginni.
Það varð ljóst í gær að Grindvíkingar urðu deildarmeistarar þrátt fyrir tap á heimavelli gegn Snæfellingum og fengu þeir afhentan bikarinn. Nú er hins vegar spennan um hvaða lið munu komast í úrslitakeppnina en aðeins átta lið komast áfram og þarf Tindastóll að vinna tvo af þeim þremur leikjum sem liðið á eftir til að vera öruggt í þá keppni.
Leikur kvöldsins hefst klukkan 19:15 og er skyldumæting á pallana.
Staðan í deildinni er þannig eftir leiki gærkvöldsins:
- 1. Grindavík 17/3 34
- 2. Þór Þorlákshöfn 13/6 26
- 3. KR 12/7 24
- 4. Stjarnan 12/7 24
- 5. Keflavík 12/7 24
- 6. Snæfell 11/9 22
- 7. Tindastóll 9/10 18
- 8. Njarðvík 9/11 18
- 9. ÍR 8/12 16
- 10. Fjölnir 8/12 16
- 11. Haukar 6/14 12
- 12. Valur 0/19 0