Tindastóll undirbýr næsta körfuboltatímabil

Verið er að undirbúa næstu leiktíð hjá körfuknattleiksdeild Tindastóls en liðið mun leika eins og kunnugt er í 1. deild. Að sögn Jóns Inga Sigurðssonar verður reynt að fá „gömlu jaxlana“ til að halda áfram þar sem þeir eru afar mikilvægir í þeirri baráttu að koma liðinu aftur upp í úrvalsdeild.

Jón Ingi segir að stefnan sé að fá einn erlendan leikmann til að styrkja liðið og þá var skrifað undir samninga við níu unga leikmenn sl. fimmtudag. Fleiri leikmannasamningar verða undirritaðir á næstu dögum að sögn Jóns Inga sem er bjartsýnn á komandi leiktímabil. Greint verður frá hverjir hafa skrifað undir síðar.

Fleiri fréttir