Tindastólsmenn í tómu tjóni
Lið Tindastóls fór illa að ráði sínu í gærkvöldi þegar strákarnir öttu kappi við ÍR í Hertz-hellinum í Breiðholtinu. Það var ljóst að bæði lið þurftu nauðsynlega að sigra og jafn ljóst að það var aldrei að fara að gerast. Stólarnir þurftu hins vegar að gjöra svo vel að passa upp á að tapa í það minnsta ekki með með meira en 5-6 stiga mun. Með flautuskoti í lok leiksins í gær náði ÍR að sigra með átta stiga mun, 80-72.
Staða Tindastóls er tvísýn fyrir síðustu umferðina sem leikin verður á sunnudaginn. Gestir okkar í Síkinu verða Grindvíkingar sem í gærkvöldi urðu deildarmeistarar og vel að því komnir eftir að hafa spilað vel í vetur. Þrír möguleikar eru í stöðunni hjá Stólunum; enn er möguleiki á sæti í úrslitakeppninni en þá þarf að nást sigur á meisturunum og önnur úrslit að verða okkur hagstæð, ef leikurinn tapast en önnur úrslit verða Stólunum hagstæð höngum við í deildinni í 10. sæti en svo gæti allt farið á versta veg því ef leikurinn gegn Grindavík tapast og annað hvort KFÍ, sem spila við KR heima, eða Fjölnir, sem taka á móti Stjörnunni, sigra í sínum leikjum þá fellur lið Tindastóls. Það verður því spenna á sunnudaginn fram á síðustu sekúndu.
Stólarnir áttu ekki góðan leik í gærkvöldi en fátt benti þó til þess að ÍR-ingar næðu takmarki sínu að sigra með meira en sex stiga mun. Lokafjórðungurinn var hins vegar ömurlegur fyrir gestina sem gerðu aðeins 11 stig á meðan ÍR gerði 20.
Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en ÍR náði góðum kafla um miðjan annan leikhluta og náðu 10 stiga forskoti. Aðeins náðu Stólarnir að klóra í bakkann og í hálfleik munaði sex stigum, staðan 44-38. Hreinsi gaf tóninn í upphafi þriðja leikhluta með 3ja stiga körfu og Tarick Johnson kom Stólunum yfir um miðjan leikhlutann. Staðan var 60-61 fyrir Tindastól þegar fjórði leikhluti hófst og Pétur Birgis gerði fyrstu körfu fjórðungsins og staðan 60-63. ÍR-ingar skiptu yfir í svæðisvörn sem Stólarnir réðu illa við. Engu að síður voru gestirnir með þriggja stiga forystu þegar tæpar fimm mínútur voru eftir, staðan 66-69, en á þeim tæpu fimm mínútum sem eftir lifðu gerði lið Tindastóls aðeins þrjú stig en ÍR mallaði inn 14 stigum á sama tíma, þ.m.t. flautukörfu Hjalta Friðrikssonar sem tryggði Breiðhyltingum átta stiga sigur og betri stöðu í innbyrðis viðureignum liðanna.
Helgi Rafn fór fyrir sínum mönnum í gærkvöldi, gerði 15 stig og tók fimm fráköst en Drew Gibson gerði 12 stig og átti 9 stoðsendingar. Valentine gerði heil fjögur stig, öll af vítalínunni, og setti ekkert af sex skotum sínum innan teigs niður. Þröstur Leó, sem var einna sterkastur Stólanna um mitt mót, kom lítið við sögu í gærkvöldi og náði ekki að komast á blað. En það þýðir ekkert að svekkja sig lengur á þessum leik. Menn verða að koma með hausinn í lagi í lokaleikinn og hitta á toppleik. Stuðningsmenn Tindastóls eru hvattir til að fjölmenna í Síkið og hvetja strákana af krafti. Áfram Tindastóll!
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 15, Tarick Johnson 13, Drew Gibson 12, Helgi Freyr 8, Hreinn 8, Svavar 8, Pétur Birgis 4 og Valentine 4.