Tindastólsmenn verða ekki bikarmeistarar í ár

Lið Tindastóls fór enga frægðarför norður á Akureyri á miðvikudagskvöldið en þar mættu strákarnir frísku liði Dalvíkur/Reynis í Bikarkeppni KSÍ en leikið var í Boganum þar sem vart var hundi út sigandi norðan heiða. Til að gera langa og leiðinlega sögu stutta þá voru það heimamenn sem fóru með sigur af hólmi.

Tindastólsmenn höfðu sýnt fína takta um síðustu helgi þegar þeir lutu í gras gegn Haukum en það var fátt um fína drætti í Boganum. Eyfirðingarnir komu baráttuglaðir til leiks og komust yfir strax eftir stundarfjórðung og öðrum stundarfjórðung betur bættu þeir öðru marki við. Staðan 2-0 og Tindastólsmenn varla farið upp á tærnar.

Donni skipti tveimur fyrir tvo í hálfleik og frískaði það aðeins upp á spil Stólanna en þó voru það heimamenn sem höfðu frumkvæðið. Tindastólsmenn fengu nokkur færi en höfðu ekki erindi sem erfiði og luku því þátttöku í Bikarkeppni KSÍ fljótt og örugglega.

Á morgun leika Stólarnir fyrsta heimaleik sinn í 1. deildinni þetta sumarið en þá mæta Ólafsvíkingar á nýsleginn knattspyrnuvöllinn á Króknum. Stuðningsmenn Stólanna eru hvattir til að fjölmenna en það er sennilega í tilefni af leiknum sem Veðurstofan spáir skjannabjörtu en fáum hitastigum og því rétt að klæða kuldann af sér en muna eftir derhúfunni og sólgleraugunum.

Fleiri fréttir