Tindastólsmönnum ekki spáð góðu gengi

Blaðamannafundur Domino's deildarinnar var haldinn í dag en Tindastóll átti fulltrúa á blaðamannafundinum sem var haldinn í Laugardagshöllinni. Á heimasíðu Tindastóls segir að spár þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna hafi verið gerð heyrinkunnug og þar var Tindastólsmönnum ekki spáð neitt sérstöku gengi.

Samkvæmt spánni er Tindastóli spáð 9. sætinu, eða ekki sæti í úrslitakeppninni. Liðin fyrir neðan Stólana eru nýliðar KFÍ og Skallagrímur, sem er spáð falli og Fjölnir, sem spáð er 10. sætinu.

Annars var KR-ingum spáð titlinum og Stjörnunni og Grindavík þar á eftir. Spáin lítur svona út í heild sinni:

1. KR - 394
2. Stjarnan - 369
3. Grindavík - 368
4. Þór Þorl - 311
5. Snæfell - 295
6. Keflavík - 284
7. ÍR - 180
8. UMFN - 177
9. Tindastóll - 141
10. Fjölnir - 120
11. KFÍ - 86
12. Skallagrímur - 83

Domino's deildin hefst nk. sunnudag og þá mun Tindastóll taka á móti liði Stjörnunnar, sem eins og sjá má hér, er spáð 2. sætinu á eftir KR.

 

Fleiri fréttir