Tindastólsstúlkur sigruðu Álftnesinga í gær
Stelpurnar í meistaraflokki Tindastóls fengu Álftnesinga í heimsókn á Krókinn í gær, í sínum fyrsta leik í 1. deildinni þetta árið. Leikurinn var háður í hinu besta veðri, hita, sól og smá vindi.
Tindastólsstúlkur sýndu það strax að þær ætluðu sér sigur í þessum leik, sóttu meira og áttu fleiri marktækifæri enda fór svo að Þóra Rut Jónsdóttir setti boltann í netið á 28. mínútu eftir góða fyrirgjöf Hugrúnar af hægri kanti og staðan 1 – 0.
Þrátt fyrir nokkur marktækifæri urðu mörkin ekki fleiri en Stólastúlkur voru heppnar að fá ekki á sig mark í blálokin en þá sóttu Álftnesingar hart að marki heimamanna og aðeins lán að því var afstýrt að gestirnir jöfnuðu ekki. Þegar boltanum var loksins komið burt af hættusvæðinu flautaði Eðvarð Eðvarðsson dómari leikinn af. Tindastólsstúlkur fóru með góðan sigur af hólmi og eru til alls líklegar í sumar.
.