Tískuslysin á tónlistarhátíðinni!

Grammý verðlaunaafhendingin fór fram með virktum í gærkvöldi. Grammý eru í miklu uppáhaldi hjá Fröken Fabjúlöss. Ástæðan er sú að tónlistarfólk býr oft yfir ákveðinni sérvisku sem oft vill endurspeglast í klæðavali, og er oft mikið um dýrðir (ja eða skort þar á) þegar Grammý hátíðin fer fram!

Hátíðin í ár er engin undantekning, og átti Frökenin í mestu vandræðum með að finna átfitt sem hana líkaði við, en fannst þeim mun auðveldara að vinsa úr það versta. Átfitt það er stóð uppúr í fegurð og glæsileika að mati okkar hérna í tískuhorni veraldarvefsins er múnderingin hennar Taylor Swift, sem var afar stílhrein, elegant og lekker, og leit Taylor út eins og grísk gyðja! Fröken Fabjúlöss hreinlega lagði ekki í það verkefni að ákvarða hvað af tískuslysunum henni fannst standa uppúr sem verst, svo mörg voru þau. Þessvegna ákvað hún frekar að láta myndagalleríið tala sínu máli. Inn á milli leynast nokkur falleg lúkk, en á heildina litið er þetta brot af því versta!

Fleiri fréttir