Töltveisla í gærkvöldi
Það var mikil töltveisla á Vindheimamelunum í gær er keppt var til þrautar í A-úrslitunum í töltinu. Sigursteinn Sumarliðason kom sá og sigraði á hryssunni Ölfu frá Blesastöðum 1A . Annar á eftir honum var landsmótssigurvegari töltins á LM2008, Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi með 8,78 og þriðji Steingrímur Sigurðsson á Mídasi frá Kaldbak með 8,67.
Stemningin í áhorfendabrekkunni var mikil enda tilefni til. Úrslit urðu eftirfarandi:
Tölt A-úrslit
Sæti Keppandi
1 Sigursteinn Sumarliðason / Alfa frá Blesastöðum 1A 8,94
2 Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi 8,78
3 Steingrímur Sigurðsson / Mídas frá Kaldbak 8,67
4 Jakob Svavar Sigurðsson / Árborg frá Miðey 8,28
5 Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal 8,22
6 Halldór Guðjónsson / Nátthrafn frá Dallandi 8,22