Tombóla til styrktar fjölskyldunnar í Kólumbíu
Emil Þórsson, Einar Ísfjörð Sigurpálsson og Viktor Franklín Viktorsson héldu tombólu til styrktar hjónunum Bjarnhildi Hrönn Níelsdóttur og Friðrik Kristinssyni fyrir framan verslunina Hlíðarkaup á Sauðárkróki sl. mánudag og söfnuðu þessir duglegu drengir hvorki meira né minna en 10 þúsund krónum.
Peningana lögðu drengirnir inn á reikning sem hefur verið stofnaður til styrktar Bjarnhildi og Friðrik en þau lögðu af stað út til Kólumbíu að sækja dætur sínar Helgu Karólínu og Birnu Salóme þann 16. desember 2011 og bjuggust þá við að vera úti í kringum 6 vikur, þau eru ekki ennþá komin heim og er ekki útlit fyrir það að þau komi heim neitt á næstunni.
Friðrik Kristinsson og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir með Helgu Karólínu og Birnu Salóme.
Þess má geta að styrktarreikningsnúmer litlu fjölskyldunnar sem er föst í Kólumbíu er: 0160-15–380170, Kt: 161278-4599.