Toppleikur Tindastóls í Lengjubikarnum

Tindastóll fékk Stjörnuna í heimsókn í Síkið í kvöld í þriðju umferð Lengjubikarsins. Leikurinn var frábær skemmtun, jafn og spennandi nánast allan tímann en um miðjan fjórða leikhluta höfðu Stólarnir náð 15 stiga forystu sem Stjörnunni gekk illa að saxa á, enda hittni Stólanna frábær, og heimamenn fögnuðu því glæstum sigri, 109-94.

Það var reyndar Jovan Zdravevski í liði gestanna sem hóf þessa 3ja stiga veislu sem boðið var uppá í kvöld. Hann setti niður tvo strax í byrjun en hann og Justin Shouse voru allt í öllu framan af leik hjá Stjörnunni sem komst í 2-8. Stólarnir gerðu næstu 10 stig en að loknum fyrsta leikhluta var staðan 25-27.

Tindastólsmenn voru að spila flottan körfubolta í öðrum leikhluta og höfðu frumkvæðið mestan part. Þá var gaman að sjá að það voru flestir leikmenn sjóðheitir og höfðu ekkert á móti því að skjóta á körfuna, menn virkuðu bara blússandi brattir. Það var helst Helgi Rafn sem var í pínu vandræðum með villurnar en var vígreifur þegar hans naut við. Stjarnan laumaðist yfir rétt fyrir hlé en Helgi Margeirs kom eðlilegu lagi á stigatöfluna með þristi og staðan 50-48 í leikhléi.

Baráttan hélt áfram í byrjun þriðja leikhluta en heldur gekk liðunum verr að hitta í körfuna til að byrja með. Það var gaman að sjá að Bárður rúlaði liðinu á 10 leikmönnum og í fyrri hálfleik höfðu níu leikmenn náð að skora en aðeins fimm hjá gestunum og virkaði breiddin í liði þeirra ekki mikil. Það var skarð fyrir skildi hjá þeim að Marvin var ekki að finna fjölina sína. Liðin skiptust á um að hafa forystuna ef ekki var jafnt í þriðja leikhluta en Stólarnir kláruðu leikhlutann sterkt og voru yfir 76-71 fyrir lokafjórðung.

Í fjórða leikhluta skildu leiðir. Stólarnir mættu gríðarlega einbeittir og baráttuglaðir.Svabbi kom sterkur inn og sýndi gamla takta, hann kom Stólunum 12 stigum yfir þegar þrjár mínútur voru liðnar af fjórðungnum. Þegar síðan Helgi Rafn og Brian Mills lentu í átökum þar sem báðir skullu í gólfið fengu báðir sína fimmtu villu og við því máttu Stjörnumenn ekki því Mills var búinn að vera ansi drjúgur. Nú átti Shouse að draga vagninn en Stólarnir voru að spila fína vörn og hann þurfti að hafa mikið fyrir hlutunum. Þrátt fyrir að Shouse setti 34 stig þá höfðu Stjörnumenn ekki erindi sem erfiði, leikmenn Tindastóls voru í stuði og það fékk þá ekkert stöðvað í kvöld. Arnar skilaði niður sjöundu 3ja stiga körfu Tindastóls í fjórða leikhluta rétt áður en leiktíminn rann út og 15 stiga sigur staðreynd.

Lið Tindastóls spilaði feykivel í kvöld. Af þeim 10 leikmönnum sem spreyttu sig var það aðeins hinn ofurhittni Rikki sem lét það vera að skora, enda skaut hann ekkert á körfuna. Aðrir sáu um það, Helgi Margeirs setti 5 þrista í 8 skotum, Svabbi 3 þrista í 3 skotum en alls gerðu Stólarnir 16 3ja stiga körfur í 32 tilraunum og fengu því Stjörnumenn að kenna á eigin meðölum að þessu sinni. Þeir voru reyndar engir slordónar á þessu sviði þó ekki kæmust þeir með tærnar þar sem Stólarnir höfðu hælana, gerðu 9 3ja stiga í 23 tilraunum sem er 39% nýting á móti 50% hjá Stólunum. Sjö leikmenn Tindastóls gerðu meira en 10 stig og fögnuðu stuðningsmenn Stólanna leikmönnum vel og lengi þegar leik var lokið. Nú er bara að byggja á þessari flottu frammistöðu og taka hana með sér í Dominos-deildina. Það dugar ekki til lengdar að vera eyða púðrinu í þenna Lengjubikar! Áfram Tindastóll!

Stig Tindastóls: Valentine 22, Svabbi 18, Helgi Margeirs 17, Þröstur Leó 12, Miles 12, Hreinsi 12, Arnar 11, Pétur Rúnar 3 og Helgi Rafn 2.

Fleiri fréttir