Torfhleðslu- og grindarnámskeið á Tyrfingsstöðum

Fornverkaskólinn ætlar að vera með torfhleðslu- og grindarnámskeið og verður það haldið á Tyrfingsstöðum í Skagafirði dagana 7-10. júní 2012. Verkefni námskeiðsins verður m.a. að hlaða torfveggi baðstofunnar og smíða húsgrind úr timbri.

Torfið er ekki lengur notað sem byggingarefni. Það tilheyrir handverksmenningu sem aðeins lifir vegna þess að við höfum ákveðið að halda við nokkrum torfhúsum sem talin eru hafa menningarsögulegt gildi. Þegar vinna á torf er mikilvægt að þekkja torftökustaði, kunna að rista og stinga efnið og meðhöndla það samkvæmt fyrirhugaðri notkun,“ segir á heimasíðu Fornverkaskólans. 

Kennarar á námskeiðinu verða Helgi Sigurðsson hjá Fornverki ehf. og Bragi Skúlason húsasmíðameistari. Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna hér og hægt er að skrá sig á námskeiðið hér eða hjá Bryndísi í síma 453 5097 eða á netfangið bryndisz@skagafjordur.is.

Námskeiðið kostar 65.000 kr. og innifalinn er léttur hádegisverður en nemendur verða sjálfir að sjá um gistingu. Minnt er á að mörg stéttarfélög veita félagsmönnum styrki til þess að sækja námskeið.

 

Fleiri fréttir