Tryllt í Tolkien!

Oft var þörf en nú er nauðsyn á því að tala á innsoginu! Black Milk Clothing selja leggings þær er löngum hafa vermt drauma Fröken Fabjúlöss, og er því skemmst frá því að segja að bæði tísku og "nörda"hjartað (já, Fröken Fabjúlöss er massívur skápa"nörd" og stolt af því) hafi misst úr slag þegar Frökenin skrapp inn á síðu Black Milk um daginn og sá að þeir væru að koma með nýja línu undir nafninu Middle Earth!!!

Fyrir þá sem á annað borð hafa áhuga þarf Fröken Fabjúlöss ekki að fara út í frekari útlistingar á því hvað nafnið á þessari línu felur í sér, en fyrir þá sem ekki hafa Tolkienfrelsast þá er Middle Earth veröldin sem Lord of the Rings og Hobbitinn gerast í, og er uppáhaldsveröld Fröken Fabjúlöss... Og í tilefni útgáfu Hobbitans fóru innanbúðarmenn Black Milk í þessar framkvæmdir!

Það er gjörsamlega líffræðilega og vísindalega ómögulegt fyrir Fröken Fabjúlöss að benda á einhverja eina flík úr þessari línu sem hana langar í umfram aðra... Í fyrsta skipti á ævinni hefur Frk Fab rambað á tískulínu þar sem hana langar í ALLT!!!! Og helst 2-3 eintök af hverju! Það eina sem Fröken Fabjúlöss hefur út á þetta að klaga er að þau hefðu mátt kannski dúndra bæði Galadriel og Elrond inn í línuna, en Frökenin gerir sér vel grein fyrir því að af nógu er að taka og líklega hefur verið erfitt að vinsa úr, þannig að þessa yfirsjón fyrirgefur hún bljúg!

Þökk sé Black Milk geta Tolkienelskandi tískudrottningar nú flaggað dýrðinni stoltar og jafnframt fashion forward!

 

Fleiri fréttir