Tveir Skagfirðingar á topp 10
Samkvæmt metsölulista bókaverslana frá 25. nóvember - 1. desember sem Rannsóknasetur verslunarinnar gefur út eru tveir Skagfirðingar með bækur sínar á topp 10. Annar þeirra er Lýtingurinn Arnaldur Indriðason með bókina Reykjavíkurnætur og hinn er Króksarinn og laumu-Hofsósingurinn Björn Jóhann Björnsson með Skagfirskar skemmtisögur í flokknum fræði og almennt efni.
Þess má geta að sölutölur frá verslunum í Skagafirði eru ekki inni í þessari samantekt bókaútgefenda og Rannsóknasetursins sem gefur þessari niðurstöðu meira vægi. Björn Jóhann segir ágætan gang vera á hlutunum og vill minna fólk á að hafa stillt á Útvarp Sögu kl. 8 í fyrramálið en þá mætir hann í morgunspjall um bókina með móður Péturs Jóhanns, hana Jóhönnu Sigríði, sem fór á kostum í þættinum Bergsson & Blöndal á Rás2 um daginn. Hún er meðal sögupersóna í bókinni og segir skemmtilega frá.