Tveir tvöfaldir á Króknum

Á fundi Leikfélags Sauðárkróks í gærkvöldi var ákveðið hvaða verkefni félagið ætlar að ráðast í á komandi leiktíð en einnig var leikstjórinn kynntur fyrir fundarmönnum. Að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur formanns LS var vel mætt og ákveðið að hefja samlestur næstkomandi sunnudag.

Ákveðið var að taka leikritið „Tveir tvöfaldir“ eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen en um fjörugan farsa er að ræða sem fjallar um alþingismanninn Orm Karlsson, eiginkonu hans Pálínu og aðstoðarmanninn Hrein. Hjákonan Ásthildur, kínverski þjónninn Sjú-Lí, Doddi, María og hótelstjórinn á Hótel Höll fléttast einnig inn í atburðarásina.

Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir en hún er einmitt að frumsýna á föstudagskvöldið með Leikfélagi Hofsóss. Ingrid hefur áður sett upp Tveir tvöfaldir hjá Leikfélagi Blönduóss.

Að sögn formannsins er enn hægt að fá að vera með þar sem fólk getur nýst í hin ýmsu verk og bendir fólki á að hafa samband við sig.

Fleiri fréttir