Bjartmar og týnda kynslóðin
feykir.is
Það var lagið
24.08.2018
kl. 11.31
Lag Bjartmars Guðlaugssonar um mömmu sem beyglar alltaf munninn og pabba sem yngist upp um 18 ár kom út á þriðju plötu hans Í fylgd með fullorðnum. Hún náði því að sitja í öðru sæti yfir mest seldu plötur ársins 1987 enda hljómuðu lögin um týndu kynslóðina, þann sem er ekki alki og Járnkallinn oft og iðulega í viðtækjum landsmanna.
Fleiri fréttir
-
Húnvetningar með sterkan sigur í fyrsta leik á Blönduósi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 24.05.2026 kl. 21.28 oli@feykir.isLið Kormáks/Hvatar og Tindastóls spiluðu bæði gær í fótboltanum. Húnvetningar gátu loks spilað á Blönduósi og þar lögðu þeir lið Kára frá Akranesi 4-1 eftir að hafa lent undir um miðjan fyrri hálfleik. Stólarnir töpuðu sínum fyrstu stigum á Egilsstöðum þar sem þeir gerðu markalaust jafntefli við lið Hattar.Meira -
Hadda opnar sýningu í Heimilisiðnaðarsafninu annan í hvítasunnu
Sumarsýning eða sérsýning Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi þetta sumarið, Hadda – leikur með þræði, verður opnuð 25. maí (annan í hvítasunnu) kl. 15:00.Meira -
Könnun um sameiningu verkalýðsfélaga
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 24.05.2026 kl. 20.35 oli@feykir.isFormenn Verslunarmannafélags Skagafjarðar, Öldunnar og Samstöðu hafa undanfarið kannað möguleika á sameiningu þessara þriggja félaga. Búið er að ræða stöðu og getu sjóða félaganna og möguleika á að standa við skuldbindingar ef af sameiningu yrði. Engin atriði hafa komið upp sem eru líkleg til að standa í vegi fyrir sameiningu.Meira -
Maríu var boðið í Varmahlíð í Prins Póló og Appelsín
Eitt af stærstu kúabúum í Skagafirði er Kúskerpi í Blönduhlíð. Það reka og eiga María Jóhannsdóttir og maður hennar Einar Halldórsson ásamt sonum tveimur, Sigurði og Halldóri og Kolbrúnu Grétarsdóttur konu hans. 120 mjólkandi kýr eru í fjósi, tveir mjaltaþjónar og framleiðsluréttur u.þ.b. 800.000 lítrar. Nautgripir til manneldis eru um það bil 100. Kornrækt er talsverð. Lítilsháttar sauðfjárrækt og hrossarækt er stunduð að ógleymdri skógræktinni. María er fædd og uppalin á Kúskerpi. Foreldrar hennar voru Sigurlína Magnúsdóttir og Jóhann Lúðvíksson Korshamn en hann var norskur. María er því hálfur Nojari og telur hún að norsku genin hafi reynst henni notadrjúg í lífinu hvað sem það nú þýðir. Blaðamaður Feykis leit við í kaffi hjá Mæju á dögunum og spjallaði við hana um búskapinn og lífið í sveitinni.Meira -
„Ég var ansi ánægð með júgrið sem ég prjónaði á Faxa hérna um árið“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni, Handverk 24.05.2026 kl. 10.54 klara@nyprent.isBerglind Inga Guðmundsdóttir er að mestu uppalin á Sauðárkróki og var í hinum stórkostlega ‘83 árgangi. Berglind er búsett í fjallabæ í Noregi með manni, tveimur börnum og litlum hundi. Hún vinnur sem sérfræðingur hjá Norska heilbrigðisskjalasafninu þar sem sjúkraskrám látinna Norðmanna er komið á stafrænt form, miðlað til rannsókna og þær varðveittar að eilífu.Meira
