Úðabrúsasóðar á ferð um Sauðárkrók
Enn fær ártalsljósið á Nöfunum á Sauðárkróki að finna fyrir skemmdafýsn óprúttinna aðila því nú hefur málningu verið sprautað á endastaf ársins 2013. Þessi sami leikur var iðkaður fyrir ári síðan bæjarbúum til lítillar hrifningar.
Ekki er vitað hvort sömu aðilar hafi staldrað við biðskyldumerkið við Villa Nova en þar hafði áríðandi skilaboðum verið komið á skiltið um að Bjarki elski einhverja stúlku en nafn hennar er ekki eins greinilegt.
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki hefur málið komið inn á borð lögreglunnar en hefur ekki verið kært. Þeir sem kynnu að búa yfir upplýsingum um hver hafi verið hér að verki er hvattur til að koma þeim til lögreglunnar svo stöðva megi þessa leiðindaiðju.