Ufsaseiði fylltu smábátahöfnina á Sauðárkróki

Mikil seiðaganga var við smábátahöfnina á Sauðárkróki fyrr í vikunni svo menn muna vart annað eins. Að sögn sjómanna sem voru á staðnum var þarna um ufsaseiði að ræða en þau voru í miklum breiðum  innan um bátana svo minnti á síldartorfur.

Miklar vangaveltur urðu um ástæðu þessa mikla magns í höfninni en helst var nefnt hlýnun sjávar, verndun fjarðarins gegn dragnótaveiðum eða þá að hvalir hafi rekið seiðin á undan sér inn fjörðinn en mikið hefur sést af þeim undanfarið. Þegar blaðamaður Feykis mætti á staðinn var orðið skuggsýnt og erfitt að taka myndir og ljósið forðuðust þau þegar lýst var með ljósahundi en meðfylgjandi eru smá sýnishorn af þessu fyrirbæri.

Fleiri fréttir