Úlfur Úlfur á Iceland Airwaves - FeykirTV
Hiphop Sveitin Úlfur Úlfur er orðin flestum kunnug. Tónlist þeirra hefur toppað vinsældalista á mörgum útvarpsstöðvum hérlendis og hafa þeir drengir fengið mikla og verðskuldaða athygli. Að sjálfsögðu létu þeir sig ekki vanta á Iceland Airwaves og spiluðu á nokkrum stöðum á hátíðinni. FeykirTV greip þá glóðvolga þar sem þeir voru að spila á Kex Hostel í beinni útsendingu útvarpstöðvarinnar KEXP 90.3, en sú útvarpstöð á höfuðstöðvar í Seattle í Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir að vera útvarpað til nokkuð stærri hóps en þeir eru vanir og það í Bandaríkjunum þá spiluðu þeir nánast einungis nýtt efni og auðvitað var rappað á íslensku.
http://www.youtube.com/watch?v=Nz798U7y-Jc