Úlfur Úlfur nýliði ársins

Hljómsveitin Úlfur Úlfur var valin nýliði ársins á Tónlistarverðlaunum X-ins 977 þann 16. febrúar sl. Hljómsveitina skipa Króksararnir Arnar Freyr Frostason og Helgi Sæmundur Guðmundsson, ásamt Keflvíkingnum Þorbirni Einari Guðmundssyni.

Tónlistarverðlaunin fóru fram á Nasa en samkvæmt heimildum Vísi.is var þar húsfyllir og frábær stemming en þetta var í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin. Fyrirkomulagið var á þann veg að hlustendur X-ins 977 kusu sigurvegara í 8 flokkum auk þess sem veitt voru sérstök útflutningsverðlaun sem Iceland Express veitti.

Strákarnir í Úlfi Úlfi voru afar þakklátir þeim 2328 manneskjum sem kusu þá og bættu við að það væri mjög gaman að fá verðlaun, eins og sjá má á myndbandi sem þeir birtu á Facebook.

Sigurvegarar Tónlistarverðlauna X-ins 977 voru:

Flytjandi ársins: Mugison
Lag ársins: Of monsters and men – Little Talks
Plata ársins : Mugison – Haglél
Söngkona ársins : Nanna Bryndís Hilmarsdóttir – Of monsters and men
Söngvari ársins: Örn Elías Guðmundsson – Mugison
Tónlistarmyndband ársins: Sólstafir – Fjara
Viðburður ársins: Iceland Airwaves
Beck´s nýliði ársins: Úlfur Úlfur
Útflutningsverðlaun Music Express: Sólstafir sem fá styrk í formi flugsæta frá Iceland Express sem gerir þeim kleift að komast út til að kynna tónlist sína.

 

 

Fleiri fréttir