Úlfur Úlfur og Agent Fresco í Sjallanum
Hljómsveitin Úlfur Úlfur kemur fram á Sjallanum Akureyri ásamt hljómsveitinni Agent Fresco nk. laugardag, þann 17. mars. Báðar hljómsveitirnar hafa verið iðnar við að koma fram undanfarin misseri og notið mikilla vinsælda.
Úlfur Úlfur, með Króksurnum Arnari Frey og Helga Sæmundi innanborðs, gaf út frumraun sína Föstudaginn langa í lok seinasta árs og hafa nokkur lög af þeirri plötu vakið mikla athygli, t.d. lögin „Lupus lupus“ og „Ég er farinn“ en hið síðarnefnda hefur verið að klifra upp íslenska vinsældarlista. Hljómsveitin var svo kjörin nýliði ársins 2011 af útvarpsstöðinni X-inu 977.
Hljómsveitin Agent Fresco hefur verið að gera góða hluti undanfarið og undirbýr sig nú undir tónleikaferðalag um Evrópu í sumar. Sveitin gaf út breiðskífuna A Long Time Listening í lok árs 2010 en sú plata verður gefin út í Evrópu í maí á þessu ári. Á sama tíma eru þeir á fullu að semja efni fyrir nýja plötu sem lítur þó ekki dagsins ljós fyrr en á næsta ári.
Tónleikarnir hefjast í Sjallanum kl. 23 og mun Konni Conca sjá um upphitun. Húsið opnar kl. 22 og verður 18 ára aldurstakmark. Forsala miða er í versluninni Imperíal á Akureyri en fyrstu 100 miðar í forsölu eru á 1000 kr., annars kostar inn 1500 kr.
/Heimild: facebook-síða viðburðarins.