Um 25 milljón kr. styrkur til rannsóknarverkefna

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi styrkir fjögur rannsóknaverkefni þar sem fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum er þátttakandi. Þremur þessara verkefna er stýrt er af Helga Thorarensen, prófessor við deildina.

Á heimasíðu Versins Vísindagarða á Sauðárkróki kemur fram að þar á meðal sé nýtt verkefni þar sem reynt er að varpa frekara ljósi á hvað ræður og hvernig má bæta fóðurnýtingu bleikju.

„Mikill munur getur verið á fóðurnýtingu milli fiskeldisstöðva og svigrúm til að bæta hana er mikið. Fóðurnýting hefur veruleg áhrif á eldiskostnað og er því mikill áhrifavaldur á afkomu fiskeldisstöðva,“ segir á heimasíðunni. Verkefnið er unnið í samstarfi við ÍslandsbleikjuMatís og Akvaplan Niva.

Annað verkefni sem AVS styrkir hefur staðið yfir undanfarið ár og fjallar um áhrif súrefnis og koldíoxíðs á vöxt bleikju.

„Í landeldisstöðvum er mikilvægt að viðhalda kjöraðstæðum fyrir vöxt, og þar eru bæði þessi efni meginumhverfisþættir auk þess að vera lykilbreytur í vatnsnýtingu. Fyrstu niðurstöður liggja fyrir og frekari tilraunir eru ráðgerðar síðar á árinu,“ segir á heimasíðu Versins. Verkefnið er unnið í samstarfi við fjölmörg fiskeldisfyrirtæki og rannsóknastofnanir og hefur það áður hlotið 8 milljóna króna styrk frá AVS.

Alþjóðleg ráðstefna á Hólum

Um miðjan ágúst verður alþjóðleg ráðstefna um smoltun laxfiska (Smolt workshop) haldin á Hólum og fékkst styrkur frá AVS til að halda ráðstefnuna. Smoltun er heiti á lífeðlisfræðilegum breytingum sem verða á laxfiskum þegar þeir ganga úr fersku vatni í sjó. Á ráðstefnuna koma allir helstu sérfræðingar heims á sviði smoltunar og seltuþols fiska og kynna niðurstöður rannsókna sinna.

Fjórða verkefnið sem AVS styrkir fjallar um samspil fitu og litarefnis í fóðri á vöxt og gæði bleikju. Auk Hólaskóla (Ólafs Sigurgeirssonar) eru MatísÍslandsbleikja og Fóðurverksmiðjan Laxá þátttakendur í verkefninu.

„Markmiðið er að meta áhrif fituinnihalds og samsetningu fituhráefnis í fóðri á vöxt og fóðurnýtingu hjá bleikju. Jafnframt verður leitað að hagkvæmustu leið við notkun og nýtingu litarefnis í fóðri og samspil þess við fituinnihald í fóðri og fiski könnuð,“ segir loks á vef Versins en meginmarkmiðið er að lækka framleiðslukostnað í bleikjueldi. Verkefnið er til tveggja ára.

Fleiri fréttir