Umfangsmiklar leitir í dag

Mikið átak hefur verið í gangi í Skagafirði í dag við að hjálpa bændum að ljúka leitum. Að sögn Vernharðs Guðnasonar slökkviliðstjóra og formanns Almannavarnanefndar Skagafjarðar tóku alls 20 manns þátt í aðgerðunum og nutu þeir aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Ákvörðun um þetta átak segir Vernharð hafa verið tekin á fundi hjá Almannavörnum Skagafjarðar sem haldinn var sl. mánudag. Stjórnvöld styðja við aðgerðirnar og einnig var þyrla Landhelgisgæslunnar fengin til að aðstoða við leitirnar. Samskonar aðgerðir voru einnig í gangi á Vaðlaheiði og Þingeyjarsýslum í dag.

Vernharð segir að haft hafi verið samband við fjallskilastjóra í Skagafirði og athugað hve margir bændur óskuðu eftir aðstoð. Í kjölfarið var ákveðið að fljúga yfir fjöllin við Kolbeinsdal, Vesturfjöllin og Fljótin. Ekki náðist að fljúga yfir Fljótin í dag þar sem þyrlan þurfti að hverfa til annarra verka. „Næst þegar veður verður gott ætlum við að fá flugvél sem er á Blönduósi til að fljúga yfir Fljótin og fjöllin á milli Mælifellsdals og Svartárdals,“ sagði Vernharð.

Leitin hófst kl. 7 í morgun og verður haldið áfram meðan birtu nýtur. Tveir staðkunnugir menn voru fengnir til að fljúga með þyrlunni,  það voru þeir Gunnar Guðmundsson á Víðinesi en hann er mjög staðkunnugur í fjöllunum hjá Kolbeinsdal og Ari Sigurðsson stórtenór í Varmahlíð sem þekkir vel til í Vesturfjöllunum.

Engar kindur höfðu fundist við leit í fjöllunum umhverfis Kolbeinsdal þegar blaðamaður náði tali af Vernharði kl. 14 í dag en þá höfðu þegar tugir fjár fundist í Miðdal í Vesturfjöllunum. Samkvæmt Vernharði eru svæðin erfið yfirferðar þar sem mikill snjór er í hlíðum og mikil aurbleyta.

„Fjöldi bænda eru nú við leitir á hestum og eru 14 björgunarsveitarmenn að aðstoða þá,“ sagði Vernharð en þær björgunarsveitir sem tóku þátt í aðgerðunum eru Björgunarsveitin Strákar frá Siglufirði, Skagfirðingasveit frá Sauðarkróki, Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð og Grettir á Hofsósi. Stjórnstöðin var á Slökkvistöðinni á Sauðárkróki.

Starfshópur til að móta viðbragðsáætlun

Á fundi Almannavarna Skagafjarðar var einnig ákveðið að skipa starfshóp sem er ætlað að vinna skýrslu um afleyðingar illviðrisins sem gekk yfir 10. og 11. september.

Á fundinum var m.a. rætt það mikla tjón sem hlaust af óveðrinu og ályktað um að nauðsynlegt væri að fara yfir aðdraganda þess og viðbrögð bæði einstakra bænda og þeirra opinberu aðila sem hefðu getað komið þar að, með það í huga að bætt verði úr þeim ágöllum sem kunna að koma í ljós.

Þetta er gert með það í huga að vinna viðbragðsáætlun þar sem horft er til framtíðar komi slíkir atburðir fyrir aftur. Verður það eitt af hlutverkum starfshópsins að skila drögum að slíkri viðbragðsáætlun til AS.

Þá er nauðsynlegt að bændur sem þurfi á aðstoð að halda við svipaðar aðstæður viti að þeir geti leitað aðstoðar og þá hvert, en til að mynda barst engin formleg beiðni um neyðaraðstoð, að sögn Vernharðs.

Fleiri fréttir