Umhverfisverðlaun Skagafjarðar veitt

Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2017 voru veittar á fimmtudaginn og er það í þrettánda skipti sem það er gert. Eins og undanfarin ár var það Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar sem stóð að verðlaununum ásamt sveitarfélaginu.
Þórdís Friðbjörnsdóttir annaðist verðlaunaafhendinguna fyrir hönd Soroptimistaklúbbsins og sagði lítillega frá framkvæmdinni. Félagar klúbbsins skipta með sér svæðinu sem er býsna víðfemt og ljóst að mikil vinna liggur að baki því að kemba þetta stóra hérað. Konurnar takast á hendur miklar skoðunarferðir og að þeim loknum er valið úr hópi tilnefninga í samráði við garðyrkjustjóra sveitarfélagsins. Þau atriði sem horft er til og metin til einkunnar eru til dæmis frágangur bygginga, geymsla tækja og áhalda, viðhald girðinga, almenn umgengni og heildarmynd húsa, lóða og byggingar.
Að þessu sinni voru veittar viðurkenningar í sjö flokkum og sagði Þórdís það sérlega ánægjulegt að verðugir verðlaunaþegar hefðu fundist í öllum flokkum.
Sigríður Magnúsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar, ávarpaði samkomuna og óskaði verðlaunahöfum til hamingju með viðurkenningarnar um leið og hún þakkaði félögum í Soroptimistaklúbbnum kærlega fyrir þeirra mikla starf. Í máli Sigríðar kom fram ánægja með að margt gott hafi verið gert í fegrun umhverfisins í Skagafirði á liðnum árum. Sagði hún að undirbúningur að sorpflokkun í öllu dreifbýli innan sveitarfélagsins hafi staðið um nokkurra ára skeið enda hafi sorpflokkun í þéttbýlinu í öllum meginatriðum gengið vel. Undirbúningur sé vel á veg kominn og stefnt sé að því að hefja sorpflokkun í öllu dreifbýli Sveitarfélagsins Skagafjarðar næsta vor. „Með aukinni flokkun leggjum við okkar af mörkum til að halda umhverfinu okkar hreinu, við fullnýtum þann efnivið sem við höfum, við spörum orku, og síðast en ekki síst aukum við líkurnar á að skila til komandi kynslóða jörð sem er enn lifandi, rík af auðlindum og vel með farin,“ sagði Sigríður og bætti við:
„Það er vel við hæfi að þessi áfangi komist til framkvæmda á afmælisári Sveitarfélagsins Skagafjarðar en næsta ár eru 20 ár liðin frá því að íbúar 11 sveitarfélaga í Skagafirði ákváðu að sameinast. Gaman væri ef íbúar fögnuðu áfanganum saman með samstilltu átaki í fegrun umhverfis þannig að Skagafjörður skarti sínu fegursta á afmælisárinu.“
Hér á eftir fer listi yfir handhafa viðurkenninganna ásamt lýsingu sem Soroptimistaklúbburinn tók saman:
Gil fyrir býli með hefðbundinn búskap: Þar búa Ómar Jensson og Vilborg Elísdóttir, ásamt foreldrum Ómars, þeim Pálínu Skarphéðinsdóttur og Jens Guðmundssyni. Gil er stórbýli þar sem rekinn er kúabúskapur með myndarbrag og staðarlegt heim að líta. Þar eru tvö íbúðahús, bæði með fallega og ræktarlega garða. Útihúsin eru stór og mikil og í kringum þau ber eðlilega mikið á heyrúllum og tækjum en þeim er snyrtilega raðað upp.
Dýjabekkur fyrir býli án hefðbundins búskapar: Þar búa hjónin Solveig Arnórsdóttir og Halldór Hafstað og fluttu þau þangað 1993. Dýjabekkur er örnefni í landinu, alllangt holt, vestan þjóðvegar. Býlið var reist syðst á dýjabekknum. Þar er einnig annað timburhús er nefnist Dýjaból. Byrjað var að gróðursetja tré í landinu uppúr 1980 og hafa þau vaxið og dafnað og er nú orðinn mikill skógur.
Allt umhverfi er mjög snyrtilegt og ásýnd falleg og ber þess merki að vel hafi verið hugsað um allt nærumhverfi öll þessi ár.
Austurgata 16, Hofsósi fyrir snyrtilegan garð. Þar búa hjónin Bryndís Óladóttir og Pálmi Rögnvaldsson sem hafa af mikilli natni byggt þennnan garð upp og hafa aldrei gefist upp á sjávarseltunni eða miklum snjóþyngslum sem oft sjást þarna. Í garðinum er fjölbreytt úrval plantna og blóma og einng er þarna afar snyrtilegt matjurtabeð. Sunnan við fallegt húsið er notalegur samverustaður, sem búið er að skýla með gróðri og skjólveggum
Lerkihlíð 1, Sauðárkróki fyrir snyrtilegan garð. Þar búa Margrét Aðalsteinsdóttir og Örn Ragnarsson. Þar er ákaflega vel hirtur garður með tré og runna sem aðalgróður. Hann er mjög stílhreinn og smekklegur í alla staði, heildarmynd húss og garðs til fyrirmyndar. Hellulögn og heildarmynd húss og lóðar er góð.
Hótelið á Deplum fyrir snyrtilegasta umhverfi fyrirtækis. Þangað er snyrtilegt og fallegt heim að líta, lóð og byggingar frágengnar og falla einstaklega vel inn í umhverfið. Allir litir á mannvirkjum eru dempaðir jarðarlitir. Girðingum er vel við haldið og geymsla tækja til fyrirmyndar, öllu raðað og vel fyrir komið. Náttúran fær að njóta sín og stígur kringum húsin lagður með stórum steinum úr náttúrusteini. Heildarmyndin er falleg og í einstaklega mikilli sátt við fallegt umhverfið í Fljótunum.
Sundlaugin á Hofsósi fyrir snyrtilegasta umhverfi opinberrar stofnunar. Það þarf varla að eyða mörgum orðum í lýsingu á þessum stað, svo þekkt er sundlaugin og umhverfi hennar enda fengið bæði viðurkenningar og verðlaun. Laugin og umhverfið er í raun algjört augnayndi og við hönnun hennar og byggingu var þess gætt að hún félli inn í umhverfið og spillti ekki útsýninu út á fjörðinn. Þetta er trúlega sá staður sem einna mest er sóttur hér í sveitarfélaginu.
Dalatún á Sauðárkróki fyrir snyrtilegustu götuna. Ásýnd götunnar er mjög snyrtileg, garðarnir afar vel hirtir og húsin eru falleg og reisuleg og vel við haldið. Í götunni eru opin og gróin svæði sem létta ásýndina og gera götumyndina jafnframt hlýlegri. Íbúarnir eru greinilega samtaka um að hafa snyrtilegt í kringum sig.
Rósmundur Ingvarsson, frá Hóli, búsettur í Varmahlíð fyrir einstakt framtak. Rósmundur gengur á undan með góðu fordæmi og sýnir okkur að umhverfismálin skipta alla máli. Árum saman hefur hann farið um og týnt rusl meðfram þjóðvegum og á víðavangi og ekki bara í hans nánasta umhverfi. Þetta hefur hann gert að eigin frumkvæði og með því minnt nágranna sína á hvað það skiptir miklu máli að allir leggist á eitt og sýni umhverfi sínu virðingu.
Með þessari viðurkenningu var honum þakkað fyrir þetta óeigingjarna starf sem vonandi hvetur aðra áfram.
Feykir óskar verðlaunahöfum öllum innilega til hamingju.