Undirbúningur fyrir Gæruna 2012 að komast á skrið

Tónlistarhátíðin Gæran á Sauðárkróki mun fara fram þriðja árið í röð dagana 23. – 25. ágúst næstkomandi. Líkt og fyrri ár munu fjölmargar hljómsveitir koma fram á hátíðinni en á síðustu hátíð var boðið upp á 27 tónlistaratriði sem voru af öllum stærðargráðum og eins var fjölbreytileikinn mikill.

Í ár verður það sama upp á teningnum og er stefnt á svipaðan fjölda tónlistaratriða ásamt því sem boðið verður upp á uppákomur tengdar hátíðinni vítt og breitt um Sauðárkrók. Hátíðin fer venju samkvæmt fram í húsnæði Loðskinns ehf. sem er eina sútunarverksmiðja landsins og jafnframt eina sútunarverksmiðjan í Evrópu sem sútar fiskileður.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir hljómsveita sem vilja spila á hátíðinni og geta þær sent umsókn ásamt helstu upplýsingum og tóndæmum á netfangið gaeranmusic@gmail.com.

Stemninguna í fyrra má upplifa hér fyrir neðan.

http://www.youtube.com/watch?v=beRZYUUr0TE&feature=youtu.be

Fleiri fréttir