Undirbúningur fyrir Náttúrubarnahátíð á Ströndum gengur vel

Dagrún Ósk Jónsdóttir. þjóðfræðingur
Dagrún Ósk Jónsdóttir. þjóðfræðingur

Náttúrubarnahátíðin á Ströndum verður haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi helgina 8.-10. júlí næstkomandi í sjötta sinn. Hátíðin er fjölskylduhátíð þar sem gestir, börn og fullorðnir, fá tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn á fjölbreyttum viðburðum sem einkennast af útivist, fróðleik og skemmtun.

Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir hátíðinni en það er Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur sem hefur séð um hann undanfarin ár. „Markmið Náttúrubarnaskólans er að líta sér nær og sjá hvað allt í kringum okkur er merkileg, að leita ekki langt yfir skammt og það er einmitt það sem við ætlum að gera á hátíðinni líka“ segir Dagrún Ósk.

„Hátíðin hefst á föstudegi og fer að mestu fram utandyra, svo við hefjum hana alltaf á því að framkvæma veðurgaldur, til að tryggja gott veður um helgina, ekki veitir nú af eins og veðrið hefur verið“ segir Dagrún og hlær. „Skipulagningin gengur mjög vel og þetta er allt að smella saman. Við erum með glæsilega dagskrá, fjölbreytt og skemmtileg atriði, tónlist, spennandi smiðjur, gönguferðir og útivist. Ég hlakka mjög til, eins og alltaf“ bætir Dagrún við.

Á hátíðinni um helgina verða meðal annars á dagskrá spennandi náttúrusmiðjur með Arfistanum, Þykjó og Eldraunum, Sirkus Ananas, Solla stirða og Íþróttaálfurinn koma í heimsókn og Lalli töframaður verður með magnaða töfrasýningu. Svavar Knútur verður með fjölskyldutónleika og svo verður hægt að fara á hestbak, taka þátt í kiðlingajóga, gönguferðum, ísbjarnahræðugerð, fjölskylduplokki, spurningaleik, hlusta á drauga- og tröllasögur, skjóta af boga og margt fleira.

Það er frítt á öll atriði hátíðarinnar en hún er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Það er hægt að kaupa súpu, grillaðar pylsur, samlokur og ís í Sævangi alla helgina. Gestum hátíðarinnar býðst að tjalda frítt á Kirkjubóli sem er beint á móti Sævangi en þar er þó ekki eiginlegt tjaldsvæði (ekkert rafmagn). Á Hólmavík er svo frábært tjaldsvæði og ýmsir gististaðir í grenndinni.

„Ég hvet náttúrubörn á öllum aldri til að koma og kynnast náttúrunni, leika sér saman og skapa skemmtilegar minningar,“ segir Dagrún að lokum.

/huni.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir