Undirbúningur fyrir Sveitasælu í fullum gangi
Steingrímur J Sigfússon landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, mun ávarpa Sveitasælu 2012 við setningu hennar, laugardaginn 25. ágúst. Sýningin verður sett um kl. 11.
Undirbúningur er núna í fullum gangi og eru þeir sem vilja vera með söluborð á markaði, eða skika á sýningarsvæði, beðnir um að bóka það á netfanginu sveitasaela@markvert.is.
Sveitasæla er uppskeruhátíð bænda og búaliðs í Skagafirði og tilvalið fyrir Skagfirðinga og nærsveitarmenn að láta sjá sig og upplifa hvað skagfirskir bændur hafa fram að færa. Verður margt til skemmtunar sem kynnt verður á næstunni, en aðgangurinn að sýningunni er ókeypis.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Reiðhallarinnar Svaðastaða, www.svadastadir.is.