Undirbúningur Gærunnar 2011 á fullri ferð
Menningarnefnd Skagafjarðar hyggst styðja við bakið á tónlistarhátíðinni Gærunni sem fram fer í húsnæði Loðskinns dagana 11. – 13 ágúst næst komandi. Óskað var eftir aðstoð við kynningarmál og framkvæmd hátíðarinnar.
Var niðurstaða nefndarinnar að styðja hátíðina með framlagi til kynningarmála, allt að kr. 200.000, auk þess sem starfsfólk Markaðs- og þróunarsviðs mun aðstoða við undirbúning eftir föngum.
Á heimasvæði Gærunnar á fésbók má sjá þær hljómsveitir sem kom munu fram en meðal nafna sem þar má sjá eru Úlfur Úlfur og Múgsefjun svo einhverjar séu nefndar.