Undirtektir við áskorun framar vonum

Áskorun til Alþingis um að leggja til hliðar aðildarumsókn í Evrópusambandið hefur farið vel af stað samkvæmt tilkynninu frá  Skynsemi en það er yfirskrift undirskriftasöfnunar á Netinu sem Feykir.is sagði frá í gær. Skráningar á vefsíðuna www.skynsemi.is eru komnar vel yfir þrjú þúsund, en söfnunin hófst fyrir aðeins tveim sólarhringum.

 

Óhætt er því að segja að áskorunin fari vel af stað en ætla má að  fjöldi kjósenda vilji að aðildarviðræðurnar verði dregnar til baka þar sem 51% þeirra eru á þeirri skoðun samkvæmt könnun Capacent Gallup sem gerð var í júní s.l.

Þann 18. ágúst 2011 var sett í gang skoðanakönnun meðal Facebook notenda þar sem spurt var “Vilt þú að aðildarumsókn að ESB verði dregin til baka." Þann 7. september höfðu 6.760 tekið afstöðu og þar af vilja 3.610 eða 53% að umsóknin verði dregin til baka, en 47% eru á móti því.

 

Hægt er að skoða lista yfir þá sem hafa skráð sig á www.skynsemi.is/listi

Fleiri fréttir