Unglingalandsmótið á Selfossi 3.-5. ágúst – Síðasti skráningardagur er á sunnudaginn 29 júlí

Nú fer að líða lokum skráningar á Unglingalandsmótið og hvetur Ungmennasamband Skagafjarðar fólk til að skrá börn sín og taka þátt á þessu frábæra móti.  Skráningu lýkur sunnudaginn 29 júlí.

Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni. Allir á aldrinum 11 – 18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu

Keppnisgreinar eru dans, fimleikar, frjálsar íþróttir, glíma, golf, hestaíþróttir, íþróttir fatlaðra, knattspyrna, körfubolti, mótorkross, skák, taekwondo og starfsíþróttir

Mótsgjaldið er 6000 kr  en UMSS greiðir gjaldið niður um helming þannig að keppendur UMSS greiða 3000 kr.  

Skráning er á ulm.is, en ef fólk þarf  aðstoð við skráningu eða einhverjar upplýsingar er hægt að hafa samband á umss@simnet.is ,  í gegnum síma 4535460  eða koma við á skrifstofu okkar á Víðigrund 5.
Nánar á umss.is

Fleiri fréttir