Upplýsingar um flug á Facebook

Heimasíða Eyjaflugs hefur ekki enn komist í loftið en sagt var á Feyki.is í gær að það stæði til. Á Facebook er hægt að fylgjast með undir Eyjaflug og þar er flugáætlunin kynnt og hægt að vera í sambandi. Verð á flugmiða aðra leiðina  er kr. 15.000,- en kr. 8.000,- barnafargjaldið fyrir 2 til 11 ára. Til að byrja með verður ekki námsmannaafsláttur. Hægt er að hringja í síma 662-4500 til að bóka sæti eða senda Facebookskeyti með viðkomandi símanúmeri.

Áætlun á Sauðarkrók er eftirfarandi:

  • Brottför frá Reykjavík
  • Mánudag kl 7:45
  • Þriðjudaga kl 7:45 og kl 17:00
  • ... Fimmtudaga kl 7:45 og kl 17:00
  • Föstudagar kl 17:00
  • Sunnudagar kl 17:00

 

Brottför frá Sauðarkróki

  • Mánudagar kl 09:00
  • Þriðjudagar kl 09:00 og 18:15
  • Fimmtudagur kl 09:00 og 18:15
  • Föstudagur kl 18:15
  • Sunnudagur kl 18:15

Ekkert flug er á laugardögum og miðvikudögum.

Fleiri fréttir