Uppskera víðast hvar mjög góð
Þresking í Skagafirði hófst í lok ágúst, tveim vikum fyrr en síðasta ár og samkvæmt Guðrúnu Lárusdóttur formanni Búnaðarsambands Skagfirðinga er uppskera víðast hvar mjög góð.
Guðrún segir þegar búið að þreskja á flestum bæjum í Hegranesi og að vélarnar séu nú komnar upp í Hjaltadal og Viðvíkursveit.
Þreskisvélarnar eru í eigu Þreskis ehf. sem er félag kornræktarbænda í Skagafirði. Félagið býr yfir þremur þreskivélum og eru þær notaðar til að þreskja þá 500ha sem ræktuð eru af korni í Skagafirði.