Uppskerufögnuður skagfirskra hestamanna

Uppskerufögnuður skagfirskra hestamanna fer fram í Miðgarði (efri hæð) næstkomandi laugardagskvöld og hefst samkoman kl. 21. Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Stíganda verður ræðumaður kvöldsins hinn landsþekkti hrossaræktandi Bjarni Þorkelsson á Þóroddsstöðum. Miðaverð á samkomuna er 1.500 kr. 

Á Uppskeruhátíðinni verða veitt verðlaun fyrir ýmsan árangur á sviði hrossaræktar og reiðmennsku. Eftirtalin bú hljóta tilnefningu sem ræktunarbú Skagafjarðar 2012:

Flugumýri II
Hólabrekka
Prestsbær
Sauðárkrókshestar
Vatnsleysa
Ytra-Vallholt

Eftirtaldir knapar eru tilnefndir sem kynbótaknapar Skagafjarðar:

Bjarni Jónasson
Gísli Gíslason
Magnús Bragi Magnússon
Mette Mannseth
Þórarinn Eymundsson

Þeir sem tilnefndir eru sem hestaíþróttamenn ársins í Skagafirði eru:

Hestaíþróttamaður Skagafjarðar - Barnaflokkur 
Guðmar Freyr Magnússon
Ingunn Ingólfsdóttir
Viktoría Eik Elvarsdóttir

Hestaíþróttamaður Skagafjarðar - Unglingaflokkur 
Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Finnbogi Bjarnason
Þórdís Inga Pálsdóttir

Hestaíþróttamaður Skagafjarðar - Ungmennaflokkur 
Ástríður Magnúsdóttir
Sigurður Rúnar Pálsson
Steindóra Ólöf Haraldsdóttir

Hestaíþróttamaður Skagafjarðar - Fullorðinsflokkur 
Elvar Einarsson
Mette Mannseth
Þórarinn Eymundsson

Fleiri fréttir