Uppskeruhátíð 27. apríl
Unglingaráð Tindastóls heldur sína árlegu uppskeruhátíð í íþróttahúsinu miðvikudaginn 27. apríl n.k. kl. 16.30. Þar fara fram hefðbundnar viðurkenningaafhendingar auk þess sem eitthvað gómsætt verður af grillinu.
Þrjár viðurkenningar verða veittar í þeim flokkum sem tóku þátt í Íslandsmótinu; Leikmaður ársins, mestar framfarir og áhugi og ástundun. Þá fá allir iðkendur í minnibolta og míkróbolta þátttökuviðurkenningar.
Í vikunni fá krakkarnir dreifimiða heim með auglýsingu um uppskeruhátíðina. Einnig verður að finna upplýsingar um sumarstarfið á dreifimiðanum en nánar verður greint frá því hér á heimasíðunni undir mánaðarmótin.
Eftir þessa viku er komið að páskafríi í körfunni hjá minni- og míkróboltaiðkendum. Æfingar hefjast aftur þriðjudaginn 26. apríl eða strax eftir páskafríið og standa út aprílmánuð.