Uppskeruhátíð skagfirska frjálsíþróttaliðsins
Í dag, fimmtudaginn 18. október, er síðasti skráningardagur á uppskeruhátíð skagfirska frjálsíþróttaliðsins og stuðningsmanna sem haldin verður laugardaginn 20. október. Hátíðin fer fram í mötuneyti Heimavistar FNV og hefst kl. 18.
Á heimasíðu Tindastóls segir að á hátíðinni mun fara fram afhending viðurkenninga, þar verður boðið upp á frábæran mat og skemmtiatriði. Verð er 2.900 kr. en 1200 kr. fyrir 11 ára og yngri.
Þátttaka tilkynnist í síma 455-8060, eða á netföngin eldhus@fnv.is og frjalsar@tindastoll.is.