Uppskeruhátíð yngri flokka á morgun
Unglingaráð Tindastóls í körfuboltanum heldur uppskeruhátíð yngri flokkanna í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á morgun þriðjudaginn 7. maí, kl. 17.00. Á dagskrá verða hefðbundnar viðurkenningaafhendingar og veitingar og eru foreldrar boðnir sérstaklega velkomnir.
Veittar verða viðurkenningar fyrir þátttöku í körfuboltastarfinu frá míkróbolta og upp í minnibolta, en hjá Íslandsmótsflokkunum verða veittar viðurkenningar fyrir ástundun, framfarir og leikmann ársins.