Uppskeruhátíð yngri flokkanna haldin í gær

Uppskeruhátíð yngri flokka Tindastóls í körfuknattleik var haldin í gær. Á Tindastóll.is segir að samkvæmt venju voru veittar viðurkenningar fyrir þátttöku og góðan árangur. Þá fékk Kári Marísson þakklætisvott frá unglingaráði fyrir vel unnin störf, en Kári kveður nú þjálfaragengi körfuknattleiksdeildar eftir frábær og óeigingjörn störf í áratugi.

Eiríkur Loftsson formaður unglingaráðs, bauð iðkendur og gesti velkomna og að því loknu var gengið til viðurkenningaafhendinga. Í samræmi við stefnu ÍSÍ í íþróttum barna, fá iðkendur 12 ára og yngri þátttökuviðurkenningar, en í eldri flokkunum eru veittar viðurkenningar fyrir áhuga og ástundun, mestar framfarir og leikmann ársins.

Viðurkenningahafar í Íslandsmótsflokkunum urðu eftirtaldir, fyrst er nefndur leikmaður ársins, þá mestar framfarir og að lokum áhugi og ástundun:

7. flokkur stúlkna
Hafdís Lind Sigurjónsdóttir - Dagmar Björg Rúnarsdóttir - Bjarkey Birta Gissurardóttir.

8. flokkur stúlkna
Bríet Lilja Sigurðardóttir - Anna Valgerður Svarvarsdóttir - Kolbrún Ósk Hjaltadóttir.

8. flokkur drengja
Elvar Ingi Hjartarson - Ólafur Már Rúnarsson - Hartmann Felix Steingrímsson.

9. flokkur drengja
Hlynur Freyr Einarsson - Hlöðver Þórarinsson - Arnar Freyr Stefánsson.

10. flokkur stúlkna
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir - Árdís Eva Skaftadóttir - Ólína Sif Einarsdóttir.

10. flokkur drengja
Pétur Rúnar Birgisson - Viðar Ágústsson - Finnbogi Bjarnason.

11. flokkur drengja
Sigurður Páll Stefánsson - Agnar Ingi Ingimundarson - Þröstur Kárason.

Drengjaflokkur
Pálmi Geir Jónsson - Páll Bárðarson - Yngvi Rafn Ingvarsson.

Myndir og nánari umfjöllun er hægt að nálgast á Tindastóll.is

Fleiri fréttir