Úrslit í NKG 2013 ráðast í vikulokin

Vinnusmiðja Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG 2013) verður haldin í Háskólanum í Reykjavík, á fimmtudag og föstudag. Sýning á afrakstri hugmyndasmiða verður opnuð á sunnudeginum í kjölfar verðlaunaafhendingar sem hefst kl.15.00 í Sólinni í húsnæði HR.

Aðalbakhjarl NKG er Marel. Aðrir bakhjarlar eru: Háskólinn í Reykjavík (HR), Háskóli Íslands (HÍ), Landsbankinn og Samtök iðnaðarins.

Rúmlega fimmtíu þátttakendur keppa til úrslita í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) sem fer fram dagana 23. og 24. maí í húsnæði HR. Hugmyndir þátttakenda eru afar fjölbreyttar og leysa ýmsar þarfir og vandamál í daglegu lífi. Meðal hugmynda má nefna Björgunarbox, Bændahjálp (app), Rúllubreiðara, Tumanál, Eggjaskurnarbrjót, Lausn á stóra sokkavandamálinu, Kindaleit og tölvuleiki af ýmsum gerðum.

Alls bárust keppninni 2906 hugmyndir frá 44 grunnskólum sem kenna miðstigi (5., 6. og 7 bekk). Þær hafa ekki verið fleiri frá árinu 2008. Matsnefnd fór yfir hugmyndirnar og valdi hugmyndir frá 51 þátttakanda í úrslit (vinnusmiðju) út frá viðmiðun um hagnýti, raunsæi og nýnæmi. Frá upphafi keppninnar hafa borist 39.106 hugmyndir.

Tilgangur vinnusmiðjunnar er að veita hverjum og einum þátttakenda tækifæri á að þjálfa sig í að breyta hugmynd í vöru með því að útfæra hana með teikningum, smíðum, textíl, forritun og framsögu undir dyggri leiðsögn fulltrúa frá NKG, SKEMA, JCI, HR og HÍ.

Í vinnusmiðjunni munu nemendur HÍ og HR standa fyrir sýningu. Sprengjugengi HÍ mætir á staðinn í morgunkaffinu fyrri daginn og talandi Róbót með sónarsjón og vöðvarit í hné frá HR sem heldur uppi stuðinu í morgunkaffinu seinni daginn. Marel, aðalbakjarl NKG, býður öllum þátttakendum í úrslitum í vísindaferð í fyrirtækið í lok fyrri dagsins. Þar býður þeirra fróðleikur í bland við skemmtun og ljúffengar veitingar.

Sýning á afrakstri hugmyndasmiða verður opnuð fyrir lokahófsgesti í kjölfar verðlaunaafhendingar sem fram fer sunnudaginn 26. maí kl. 15.00 í Sólinni (HR). Þar afhendir verndari NKG, forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, verðlaun og fulltrúi  frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu afhendir farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri grunnskóla. Hugmyndasmiðir stíga enn fremur á stokk og segja frá hugmyndum sínum.

Verðlaun NKG eru glæsileg en sigurvegarar fá að launum sérsmíðaðan verðlaunagrip hannaðan af Pálma Einarssyni iðnhönnuði. Fyrstu verðlaun eru iPad, önnur verðlaun er Bamboo teikniborð og í þriðju verðlaun er námskeið í tölvuleikjaforritun í boði Skema.is. Samtök iðnaðarins og epli styrkja verðlaunin. Auk þess fá verðlaunahafar ferð í Fab Lab smiðju í boði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og gjafabréf í Háskóla unga fólksins í boði HÍ.

Tilgangur NKG er að gera grunnskólanemendum grein fyrir sköpunargáfu þeirra og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir. NKG er mikilvæg hvatning til nemenda og kennara í starfi sínu í þeirri nýsköpunarmennt sem fer fram innan grunnskóla landsins.

NKG hefur innihald og hæfnisviðmið Aðalnámskrár grunnskóla frá 2011 í forgrunni við starf sitt. Þar er „sköpun“ skilgreind sem einn af grunnþáttum í íslenskri menntun.

Umsjón með keppninni hefur Mennta- og menningarmálaráðuneytið en framkvæmdastjórn hennar er í höndum NKG verkefnalausna.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir