Úrslit í Stóru upplestrarkeppninni
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Skagafirði fór fram á sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sl. þriðjudag. Á vef Varmahlíðarskóla segir að fjöldi manns hafi sótt athöfnina sem hófst á því að umsjónarmaður keppninnar, Laufey Leifsdóttir, flutti ávarp. Kynnar voru nemendur sem tóku þátt í keppninni á síðasta ári og voru tónlistaratriði í höndum nemenda Tónlistarskóla Skagafjarðar í Varmahlíð undir leiðsögn Stefáns R. Gíslasonar.
Glæsilegur hópur ungmenna las af djörfung og áhuga og hefur dómnefnd verið vandi á höndum, segir á heimasíðu Varmahlíðarskóla. Formaður dómnefndar var Jón Hjartarson leikari en úrslit fóru þannig að Ingunn Ingólfsdóttir, Varmahlíðarskóla, varð í 3. sæti, Ólöf Birna Andradóttir, Grunnskólanum austan vatna, varð í 2. sæti og Guðmar Freyr Magnússon, Árskóla, varð í 1. sæti.