Utankjörfundaratkvæðagreiðslu lýkur á hádegi

Utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Sauðárkróki vegna kosninga til stjórnlagaþings lýkur á hádegi í dag en kosið er hjá Sýslumanninum á Sauðárkróki. Annars munu almennar kosningar fara fram á morgun laugardag.

Skipan í kjördeildir í Skagafirði er eftirfarandi:

Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps - kjörfundur hefst kl. 12:00

Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps - kjörfundur hefst kl. 09:00

Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði,
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps - kjörfundur hefst kl. 12:00

Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps - kjörfundur hefst kl. 12:00

Kjördeild í Grunnskólanum á Hofsósi,
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps - kjörfundur hefst kl. 10:00

Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum,
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps - kjörfundur hefst kl 12:00

Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Staðar - og Seyluhrepps -kjörfundur hefst kl. 10:00

Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,
frá kl. 13-16

Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að hann hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.

Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00

Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni til hádegis 26. nóvember 2010.

Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.

Fleiri fréttir