Útileikur við ÍR í kvöld
Einn mikilvægasti leikur Tindastóls í Domino´s deildinni í vetur fer fram í kvöld því bæði er stutt í úrslitakeppnina sem og á botninn. Með sigri getur liðið náð Skallagrími að stigum og komið sér í 8. sætið og þar með komið öðrum fætinum í úrslitakeppnina, svo fremi að Skallagrímur tapi fyrir KR. Ef Tindastóll tapar hins vegar fyrir ÍR með meira en 6 stigum, komast ÍR-ingar ofar á töfluna með jafnmörg stig en betra hlutfall á innbyrðisviðureignum.
Staðan fyrir síðustu umferðina er þessi í neðri hlutanum:
- 8. Skallagrímur 7/13 14
- 9. Tindastóll 6/14 12
- 10. Fjölnir 5/15 10
- 11. ÍR 5/15 10
- 12. KFÍ 5/15 10
Á Tindastóll.is segir að öll þessi lið geta fallið, tölfræðilega séð og öll utan Fjölni, náð 8. sætinu líka. Það er því stutt í gleði og sorg þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.
„Tindastóll á eftir að spila við ÍR úti og Grindavík heima.
Skallagrímur á eftir að spila við KR úti og Þór Þorlákshöfn heima.
Fjölnir á eftir að spila við Grindavík úti og Stjörnuna heima.
ÍR á eftir að spila við Tindastól heima og Keflavík úti.
KFÍ á eftir að spila við Stjörnuna úti og KR heima.
Fari leikirnir sem eftir eru, eftir hinni svokölluðu bók, eða nákvæmlega eftir stöðu liðanna í deildinni, eru litlar líkur á því að fleiri stig séu í boði fyrir liðin í neðri hlutanum, en stigin úr leik ÍR og Tindastóls. Leikurinn sá gæti því hæglega ráðið úrslitum um það hvort að það verði Tindastóll eða Skallagrímur sem fari í úrslitakeppnina og um leið hvort að ÍR-ingar falli hreinlega. Svo geta úrslit auðvitað orðið óvænt út um allt, við þekkjum það. Ofan á þetta allt er Tindastóll með lakari innbyrðisstöðu gegn bæði Fjölni og KFÍ,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Allir Skagfirðingar og stuðningsmenn Tindastóls eru hvattir til að fjölmenna í Hertz Hellinn í Seljaskóli og láta öllum illum látum, á jákvæðan hátt að sjálfsögðu.
Stefnt er að útsendingu fyrir aðra á Tindastóll TV og Norðanmenn eru hvattir til að mæta á Mælifelli og gæða sér á veitingum og horfa á leikinn.