Vatn flæddi um gólf Ábæjar í morgun

Þegar starfsfólk Ábæjar, verslunar N1 á Sauðárkróki, mætti til vinnu í morgun, blasti við þeim ófögur sjón. Vatn lá þá yfir öllum gólfum verslunarinnar fyrir utan eins herbergis. Að sögn Rúnars Rúnarssonar verslunarstjóra fór þó betur en á horfðist í fyrstu.

Rúnar segir að vatnið hafi komið frá biluðum klósettvatnskassa og greinilegt sé að hafi bilað snemma í nótt þar sem vatnsbunan hafi ekki verið mikil. Slökkviliðið var fengið á staðinn með vatnsdælur til að dæla vatninu út og segir Rúnar að skemmdir séuu óverulegar og afgreiðsla komin í eðlilegt horf.

Fleiri fréttir