Vegir felldir af vegaskrá

Á fundi byggðaráðs Skagafjarðar í vikunni var lagt fram til kynningar bréf frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt var um að nokkrir vegir á Hofsósi yrðu felldir af vegaskrá enda falla þeir ekki undir skilgreinda tengivegi eða þjóðvegi

Um er að ræða Suðurbraut að Skólabraut, Skólabraut að Lindargötu, Norðurbraut frá Skólabraut að Hafnarbraut og Hafnarbraut frá Norðurbraut að hafnarsvæði.  Sveitarfélaginu er gefinn kostur á að gera athugasemdir við þessa ákvörðun fyrir 1. ágúst 2012 en erindið fer til afgreiðslu hjá umhverfis- og samgöngunefnd.

Fleiri fréttir