Vel gert hjá tombólukrökkum
Þær vinkonurnar Alma Karen Sigurðardóttir Snæland og Svava Dís Jóhannesdóttir á Sauðárkróki stóðu í ströngu á fimmtudaginn í síðustu viku og héldu tombólu við Skagfirðingabúð. Vel gekk að koma varningnum út og alls safnaðist 8331 króna og ákváðu þær stöllur að láta afraksturinn renna í styrktarsjóð Magnúsar Jóhannessonar.
Að þeirra sögn gekk vel að safna hlutum á tombóluna og til dæmis hefði ein kona gefið þeim „rosa“ mikið dót.