Vélaval áfram í óbreyttri mynd
Landstólpi ehf. hefur keypt verslunina Vélaval í Varmahlíð af Kristjáni Sigurpálssyni, sem rak fyrirtækið til fjölda ára. Samkvæmt Magnúsi Gunnarssyni verslunarstjóra mun fyrirtækið starfa þar áfram í óbreyttri mynd og ber áfram nafnið Vélaval.
Fyrirtækið hafði verið lengi til sölu áður en Landstólpi keypti það en að sögn Magnúsar gekk salan í gegn þann 16 apríl sl.
Vélaval er gamalgróið fyrirtæki sem hefur sterkar rætur í samfélaginu í Varmahlíð og var það því ánægjulegt að hinir nýju eigendur vilja halda áfram rekstri þess í óbreyttri mynd.
„Sama þjónustan verður hér áfram, boðið upp á sömu vörurnar og svo auðvitað munu einhverjar nýjar bætast við,“ sagði Magnús.
Landstólpi ehf. er staðsett í Hrunamannahreppi en um fyrirtækið segir á heimasíðu þess:
„Fyrirtækið Landstólpi ehf. var stofnað árið 2000 og var í upphafi fyrst og fremst í hönnun og ráðgjöf á fjósum og breytingum á þeim. Með innflutningi á innréttingum og tæknibúnaði í fjós, svo og steinbitum. Árið 2005 hóf fyrirtækið innflutning á sáðvöru og stálgrindarhúsum klæddum með urethan samlokueiningum. á nú meðal annars einn öflugasta kranabíl landsins, auk þess að eiga vinnulyftur og annað það sem þarf til að reisa stálgrindarhús. Landstólpi hefur tekið að sér alverk á verkum svo og stórflutninga og kranabílaþjónustu.“