Verið að leggja byggðirnar niður

-Það er verið að leggja byggðirnar niður, segir Sigurjón Þórðarson formaður Frjálslyndra í pistli á Eyjunni og gagnrýnir þar stefnu ríkisstjórnarinnar sem hann telur slæma gagnvart Skagafirðingum og reyndar landsbyggðinni allri. -Þessi stefna gagnvart dreifðu byggðunum er óskiljanleg vegna þess að í sjávarbyggðunum verður til drjúgur hluti af útflutningstekjum þjóðarinnar og gæti hann orðið ennþá meiri ef atvinnufrelsi verður aukið.

Sigurjón segir að í Skagafirði hafi niðurskurðurinn verið einkar harkalegur, en opinberum störfum hefur verið fækkað 50% meira þar en að jafnaði á landsvísu eða um hátt í 60 störf frá árinu 2008. Máli sínu til stuðnings bendir Sigurjón á töflu  sem SSNV hefur tekið saman og  sýnir breytingar á stöðugildum opinberra starfa í Skagafirði en árið 2008 voru þau 329,88 en 2012 voru þau komin niður í 283.

Þá segir Sigurjón að nú berist þau tíðindi að 130 ára sögu sýslumannsembættisins í Skagafirði sé að ljúka, þrátt fyrir að innanríkisráðherra hafi gefið það í skyn að til þess myndi ekki koma! „Ef að sýslumannsembættið verður lagt niður, er nokkuð ljóst að niðurskurðinum í sveitarfélaginu er ekki lokið,“ segir Sigurjón.

Sjá töflu og pistil HÉR

Fleiri fréttir