Vestur-Íslendingur af skagfirskum ættum heldur fyrirlestur í kvöld

Sunna Pam Furstenau heldur fyrirlestur sinn „The love of Iceland in America“ Í Safnahúsinu á Sauðárkróki kl. 20:00 í kvöld. Fyrirlesturinn fjallar um Vesturheimsferðir í máli og myndum og hvernig Íslendingum reiddi af eftir að þeir komu til Bandaríkjanna.

„Sunna sem er af skagfirskum ættum hefur lagt mikla vinnu í að grafast fyrir um sögu forfeðra sinna. Áhugi hennar á viðfangsefninu er gríðarlegur og hún er einstakur fyrirlesari sem hrífur fólk með sér. Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn sem fer fram á ensku og  er í um klukkustund,“ segir í fréttatilkynningu.

Sunna heldur einni fyrirlestur sinn á Laxasetri Íslands á Blönduósi á morgun 29. ágúst kl. 20:00.

Hægt er að fræðast nánar um Sunnu Pam Furstenau á heimasíðunni www.icelandicroots.com.

Fleiri fréttir